A ðeins í Frakklandi gætu menn komið upp með þá hugmynd að tileinka hluta desembermánaðar gómsætum eftirréttum. Ekki einum eða tveimur heldur þrettán.

Einn af mörgum yndislegum smábæjum Frakkland er Aix de Provence. Mynd marcovds

Einn af mörgum yndislegum smábæjum Frakkland er Aix de Provence. Mynd marcovds

Það er nákvæmlega það sem boðið er upp á við torg Jóhönnu af Örk í smábænum Aix en Provence en milli 16. og 24. desember ár hvert setja smáréttasnillingar héraðsins sig í stellingar og bjóða til veislu öllum að kostnaðarlausu.

Engum þarf að segja hve framarlega Frakkar eru í köku- og súkkulaðigerð og hér er boðið upp á það allra besta. Vínvættar núggatsneiðar eða lungnamjúkar hunangsfíkjukökur þráðbeint úr ofninum. Og ferskir ávextir verða ekki útundan heldur.

Fyllist bærinn vissulega á þessum dögum en þar sem bærinn sjálfur er tiltölulega lítill skapar það bara góða stemmningu og fjöldinn ekki of mikill til að njóta. Dagar hinna 13 forrétta, Le Marché des 13 Desserts, eru þess virði ef einhver skyldi nú vera að eyða jólavertíðinni í suðurhluta Frakklands

Heimasíðan hér.