Tíðindi

Flestir telja flugsamgöngur öruggar

  04/12/2010september 29th, 2014No Comments

Meirihluti fólks í Bandaríkjunum og fimm ríkjum Evrópu telur flugsamgöngur öruggan ferðamáta samkvæmt úttekt Financial Times. Mælast töluvert fleiri sem svo telja raun en stærri kannanir hin síðari ár hafa mælt.

Þannig eru 75 prósent Spánverja á því að flugsamgöngur séu öruggur ferðamáti. 72 prósent Breta er á sama máli og 69 prósent Bandaríkjamanna en öll þessi lönd hafa orðið fyrir hryðjuverkaárásum á þessari öld

Það sem meira er að meirihluti í öllum löndum telur núverandi öryggisráðstafanir á flugvöllum alls ekki of harðar eða miklar. Eru reyndar margir á því að þær þurfi að herða frekar. Þá er meirihluti í öllum löndum fylgjandi notkun líkamsskanna sem þó hafa verið verulega umdeildir í Bandaríkjunum.