Stór fjöldi fólks viðurkennir að hafa smyglað með sér hlutum um borð í flugvélar sem bannað er að hafa í handfarangri samkvæmt nýrri könnun.

Helmingi ferðafólks finnst öryggisleit vestanhafs of mikið af því góða. Mynd pixshark

Helmingi ferðafólks finnst öryggisleit vestanhafs of mikið af því góða. Mynd pixshark

Hlutfallið reynist 42 prósent í könnun Skyskanner þegar spurt var um hvort fólk hefði tekið með sér óleyfilega hluti í flug. Oftast nær óvart þó.

Ekki kemur fram um hvaða hluta hér er að ræða en rannsóknir vestanahafs hafa leitt í ljós að fjöldi fólks kemst um borð í farþegavélar með vopn af ýmsum toga sem ekki finnast við leit.

Þá var forvitnilegast að vita hvað fólki finndist um þá miklu og nánu líkamsleit sem gerð er á alþjóðaflugvöllum í Bandaríkjunum. Tæplega helmingur svarenda, 48%, sögðu það of mikið af því góða.

Þá kemur í ljós að 46 prósent sögðu að líkamsleit almennt væri óþægileg, 34 prósent fara hjá sér við slíka leit og einn af hverjum átta vildi meina að um kynferðislegt áreiti væri að ræða.

Flestir höfðu þó skilning á mikilvægi öryggisleitar á flugvöllum. Það sem fólk gremst mest eru þær gríðarlöngu raðir sem myndast á annatímum á velflestum flugvöllum heims. Fátt ljúft við að bíða í biðröð í tíu til þrjátíu mínútur til þess eins að láta þukla sig í bak og fyrir. Nema auðvitað að öryggisvörðurinn sé af betra kyninu, í kjörþyngd og með bros sem gæti brætt parmesan á pizzu.