Um fimm ára skeið hefur Icelandair nú boðið viðskiptavinum sínum að kolefnisjafna flug sín. Það þýðir að fyrir ákveðna greiðslu sér flugfélagið um að fyrirtækið Kolviður gróðursetji tré sem jafnar út þá mengun sem hver og einn farþegi veldur þegar ferðast er með þotu.
Fararheill.is leitaði svars hjá Icelandair hversu margir kolefnisjöfnuðu flug sín.
Upplýsingafulltrúi Icelandair hafði ekki svar á reiðum höndum um fjölda né prósentur en sagði afar fáa nýta sér slíkt eða hafa nýtt sér slíkt frá því hafið var að bjóða þennan valkost. Er það gert í sama mund og miði er keyptur og þá hakað við að kolefnisjafna.
Er kostnaðurinn misjafn eftir lengd flugs en sem dæmi um kostnaðinn fram og til baka til London eru heilar 638 krónur.






