Stærsta skemmtiferðaskip heims er á ný farið að sigla um heimsins höf. Á ný vegna þess að búið er að vígja og hleypa af stokkunum skipið Allure of the Seas sem er systurskip Oasis of the Sea sem er það stærsta sem til er.
Systurskipið nýja er nákvæmlega eins í alla staði og nákvæmlega jafn glæsilegt. 360 metrar á lengd, hærra en Hallgrímskirkjan á hæðina og vegur 600 tonn.
Þar komast 6.300 farþegar fyrir í einu eða allir íbúar Akraness í því samhengi. Þar eru þó töluvert fleiri veitingastaðir en uppi á Skaga eða tólf talsins. Þar er líka, ólíkt Akranesi, danshöll, skautasvell og 1.400 manna leikhús. Eru þá ótaldir 40 nuddpottar, fjórar sundlaugar, nokkrar líkamsræktarstöðvar að ógleymdum nokkrum spilavítum.
Skipið er í eigu Royal Caribbean skipafélagsins og mun sigla um karabíska hafið í framtíðinni.
Heimasíða Royal Caribbean hér.






