T veir af vinsælli myndaflokkum sem sýndir hafa verið hér á klakanum undanfarin misseri eru norsku þættirnir á RÚV um stöllurnar Marit og Maríu í norsku þáttunum Himmelblå og Hvaler. Eru báðir gamaldags afþreyingarþættir en athygli margra hefur verið vakin á hversu fallegt umhverfið er á þeim stöðum sem þættirnir gerast.

Norskir þættir hafa kveikt áhuga á ferðalögum á þær slóðir sem þættirnir gerast og ekki hvað síst hjá Norðmönnum sjálfum

Norskir þættir hafa kveikt áhuga á ferðalögum á þær slóðir sem þættirnir gerast og ekki hvað síst hjá Norðmönnum sjálfum

Þættirnir eiga ansi margt sameiginlegt en hvort það er tilviljun ein eða til marks um hugmyndafátækt norskra þáttagerðarmanna skal ósagt látið.

Ungar konur eru í aðalhlutverki í báðum þáttum. Báðar konur skipta um umhverfi. Báðar flytjast út í norska eyju. Báðar finna ástina og missa hana og svo framvegis.

Það sem meira er; báðir þeir staðir sem þættirnir eiga að eiga sér stað á eru til í raun og veru þó minna sé kannski þar spennandi en gerist í umræddum þáttum.

Hvaler er samnefni nokkurrra smáeyja við eynna Kirkøy í Oslófirði en eyjan sú er einnig skammt frá sænsku landamærunum. Tilheyra eyjurnar Østfold héraði. Einhverjar fiskveiðar eru stundaðar frá eyjunum en þær eru fyrst og fremst sumarleyfisstaður og velflestar byggingar á eyjunum eru sumarhús velmegandi Norðmanna frá Osló. Segir það alla söguna að fjöldi þeirra sem skráðir eru til búsetu á Hvaler eru 4 þúsund talsins en sumarhúsin á svæðinu er 47 þúsund að tölu.

Hægt er að aka þangað enda margar eyjanna brúaðar en stærsti þéttbýlisstaðurinn á þessu svæði er bærinn Frederikstad. Margir koma þó einnig með bátum frá annaðhvort nálægum eyjum ella lengra að.

Eyjan Ylvingen, þar sem þættirnir Himmelblå gerast er alllengra til norðurs og reyndar mun norðar en Þrándheimar. Situr eyjan í mynni Stokkefjarðar en allnokkrar eyjur eru á þessu svæði. Stærst þeirra er eyjan Vega sem héraðið er ennfremur kennt við. Í Ylvingen búa í raun og veru 30 einstaklingar og sækja sjóinn en töluverð ferðamennska hefur verið í eyjunum sökum þess að hér eru töluvert um stríðsminjar síðan Þjóðverjar notuðu eynna sem fangelsi fyrir herfanga.

Það er í raun og veru kaffihús í eynni, sem rekið er á sumrin, sem heitir Himmelblå en það reyndar tók ekki til starfa fyrr en ári eftir að þættirnir vinsælu voru sýndir fyrst.


View Larger Map


View Larger Map