Allir þekkja reglurnar. Slökkva á farsímum, sætisbökin bein, festa beltin, fylgjast með fræðslumyndbandi um viðbrögð í neyð. Langflestir hafa efalítið velt fyrir sér ástæðum að baki þessara undarlegu reglna og ekki síður reglur þær er gilda um öryggi. Fararheill.is skoðaði hvaða vísindi liggja þarna að baki.
- Beltin spennt og sætisbök bein í flugtaki og lendingu
Bæði vanir flugmenn og ekki síður tækni- og vísindamenn segja þér að hættulegustu stundirnar fyrir flugvél eru alltaf flugtök og lendingar því þá stjórna flugmenn öllu saman og langmesta hættan er á mannlegum mistökum. Í velflestum öðrum kringumstæðum geta góðir flugmenn bjargað því sem bjargað verður en við flugtak og lendingar er ekki nokkurt bil fyrir mistök. Þau þýða einfaldlega að vélin brotlendir. Að því gefnu að vélin brenni ekki til grunna eða hún hrapi úr það mikilli hæð að vélin tvístrast í þúsund bita getur belti bjargað því að farþegar kastist til og frá í farþegarrýminu eins og í bifreiðum. Gallinn við beltin er auðvitað sá að í velflestum verri flugslysum er það lífsspursmál að komast út sem fyrst og beltin gefa tafið verulega.
Hvað beina bakið varðar hefur það engin áhrif hvort bak er beint eða ekki í flugtaki eða lendingu nema að því gefnu að mikill hnykkur komi á vélina. Sem gerist auðvitað aðeins við brotlendingu. Þá er hætta á að fólk í sætinu fyrir aftan geti meiðst verr en ella ef bakið er ekki beint. Hættan á þessu á dýrari farrýmum er lítil sem engin enda mun lengra milli sæta þar.
- Slökkva á farsímum
Fyrir 20 árum síðan eða svo þegar farþegar fyrst fóru að taka með sér ýmis rafeindatæki um borð vöknuðu áhyggjur af mögulegum fjarskiptatruflunum enda raftæki flugvéla ekki sérstaklega varin fyrir slíku á þeim tíma. Þetta hefur gjörbreyst til batnaðar með betri og öruggari búnaði en þess utan gátu tæplega 30 rannsóknir NASA á því hvort farsímabylgjur eða aðrar bylgjur hefðu áhrif á stjórntæki flugvéla aldrei sýnt afgerandi niðurstöður. Í nýrri vélum er þetta einfaldlega ekki vandamál enda fjölmargir sem gleyma að slökkva á farsímum sínum í flugi.
- Öryggisupplýsingar
Eru á margan hátt góðar en ýmislegt skýtur þó skökku við og ekki síst þegar áhöfnin sjálf sveigir eða brýtur reglur eða fyrirmæli. Það er jú athugavert að farþegar eru ítrekað beðnir um að halda kyrru fyrir í sæti sínu öllum stundum og helst með beltin spennt. Hvers vegna flugþjónum leyfist að valsa um með varning og mat í kerrum sem alfarið loka öllum göngum á sama tíma er umhugsunarefni. Eru líf þeirra ómerkilegri? Snúast fyrirmælin kannski um að vera ekki að þvælast fyrir sölufólkinu? Eiga þau þá eitthvað skylt við öryggi?
Eitt besta dæmið um að brjóta reglur gerðist árið 2009 þegar flugvél US Airways brotlendi í Hudson á í New York. Öllum var bjargað af væng vélarinnar áður en hún sökk. Nema hvað skýrt er tekið fram í öryggisbæklingi þeirrar vélar og öðrum að komi til neyðar skuli farþegar aldrei fara út á vængi flugvéla nema til að hoppa af þeim um leið.







