Þ að er eitthvað nett sorglegt við þá áráttu Bandaríkjamanna og annarra að reisa eftirlíkingar af frægum byggingum í Evrópu á sínum eigin grundum en um það eru hundruðir dæma. Og sennilega fer það ekkert sérstaklega ljúft niður hjá þjóð þeirri sem fyrirmyndina á.

Hver þarf á Aþenu að halda þegar Nashville nægir. Þar er endurgerð frægustu byggingar grísku borgarinnar. Mynd damiandude
Hægt er að ímynda sér hneykslan Íslendinga ef Nonnahús, Hallgrímskirkjan eða aðrir þjóðfrægir staðir væru endurgerðir frá A til Ö í krummaskuði í Bandaríkjunum.
Eitt dæmi um slíkt finnst í kántríborginni Nashville. Fæstir tengja þá borg við grísku borgina Aþenu en Nashville hefur lengi vel haft viðurnefnið Aþena suðursins vestanhafs.
Í Þúsaldargarðinum, Centennial Park, í Nashville er nákvæm fullbyggð eftirlíking af hinu heimsþekkta Parthenon hofi sem situr á toppi Akropolis hæðar í Aþenu. Bandaríska byggingin reyndar merkilega gömul líka því eftirlíkingin var byggð árið 1897.

Aþena hin bandaríska innandyra í Nashville.
Ólíkt gríska hofinu er þetta hof að stórum hluta lokað af og innandyra er ekki bara ágætt safn í kjallaranum heldur stendur hér hin gríska gyðja Aþena tólf metra há og gulli skreytt á miðju gólfi.
Byggingin stórfalleg enda hefur Kaninn vandað til verka eins og sjá má á myndum. Umhverfið er heldur ekki amalegt og ekki þarf að klifra stóra hæð til að komast að listaverkinu eins og á upprunalega staðnum.
Fínt að kíkja eftir að hafa fengið sér vöfflur og kaffi undir tónlist Dolly Parton á næsta kaffihúsi en stemmningin verður líklega aldrei sú sama enda endurgerðin hjóm eitt miðað við frumverkið þrátt fyrir allt.





