Tíðindi

Að vita ekki svörin við eigin spurningum

  15/02/2013mars 8th, 2016No Comments

Tæpt ár er nú síðan ritstjórn Fararheill fékk síðast skeyti frá Úrval Útsýn sem við höfum ítrekað gagnrýnt fyrir dapra þjónustu gagnvart viðskiptavinum sínum. Það skeyti á þá leið að við værum svo vonlaus að því við værum svo neikvæð.

En við erum ekkert neikvæð heldur er ferðaskrifstofan ekki að standa sig og við erum bara að benda á hið augljósa. Ítrekað höfum við bent á hluti sem betur megi fara en fyrirtækið hefur sennilega lítinn áhuga að bæta sig ef marka má viðbrögðin.

En við erum hvergi nærri hætt enda ferðaskrifstofan ekkert að laga hlutina hjá sér mikið. Á forsíðu vefs Úrval Útsýn núna er dálkurinn „Spurt og svarað“ þar sem hugsanlegir viðskiptavinir eiga að fá svör við algengum spurningum. Spurt og svarað dálkar eru algengir hjá fyrirtækjum en þar er nú yfirleitt öllum spurningum svarað.

Það er ekki raunin hjá Úrval Útsýn. Eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti er ein spurningin: Hvernig fæ ég besta verðið? En þeirri spurningu er bara alls ekki svarað.

Kannski af því að þeir vita það ekki?