Þ ig dauðlangar út í heim sem oftast en þig dauðlangar líka til að börnin þín og barnabörnin njóti sæmilegra lífsgæða árið 2060. Með hverjum er gáfulegast að fljúga í því tilliti?

Vandlifað í henni veröldinni, burtséð frá kófinu, og sjaldan sem nú þegar nánast hver blettur á jarðarkringlunni er að hitna meira en góðu hófi gegnir.

Það nægir að skoða Youtube eða Instagram til að finna myndir af ólíklegustu dýrum heims að leita skjóls frá yfirgnæfandi hitum þetta sumarið í Englandi, Þýskalandi, Bandaríkjunum, Brasilíu, Nýja-Sjálandi, Ástralíu, Noregi, Túnis og Grikklandi svo fáein ríki séu nefnd.

Með öðrum orðum; ef spen- og sjávardýr jarðar eru farin að leita skjóls frá hitanum að sumarlagi og við mannfólkið höldum okkur innivið eða ofan í köldum sundlaugum, hversu slæmt verður þetta orðið eftir tíu ár? Tuttugu ár? Fimmtíu ár?

Nýjar rellur Play menga mikið mun minna en gamlar rellur Icelandair. Samsett mynd

Samkvæmt Alþjóðasamtökum flugrekenda, IATA, er flugiðnaðurinn í heild sinni sekur um sex til sjö prósent af heildarlosun koltvísýrings út í andrúmsloftið á ári hverju. Með tilliti til að þetta eru hagsmunasamtök flugrekenda er sennilega óhætt að bæta nokkrum prósentum við þá tölu. Gefum okkur að flugferðir valdi 10% af þeim koltvísýringi sem við hendum út í andrúmsloftið árlega.

En þig langar samt í dúllerí til Spánar ekki satt?

Hvort er þá betra að fljúga með Icelandair eða Play svona til að setja smá plástur á sektarkenndina?

Svarið við því er Play númer eitt, tvö og þrjú og við vitnum í háa herrans Google því til sönnunar. Það er nefninlega komin ný viðbót við flugleitina Google Flights þar sem sjá má gróflega hvað hver rella er að eyða sirka á flugi sínu til hinna og þessara staðana á jarðarkringunni. Og þar eru eldgamlar rellur Icelandair ekki alveg að rokka eins og sjá má að meðfylgjandi skjáskoti.

Þar um að ræða flug til austurrísku borgarinnar Salzburg í vetur en þangað fljúga bæði Play og Icelandair frá janúar næstkomandi. Príma stopp fyrir skíða- eða brettaferðir eða fyrir þau okkar sem vantar smá menningu í æð svona yfir háveturinn.

Miðað við vélarnar sem flugfélögin bjóða í þau flugin mengar Icelanadair 26 kílóum meira af koltvísýringi per farþega þá leiðina og heim aftur en rellur Play gera.

TUTTUGU OG SEX KÍLÓ!!!

Það ekkert smáræði. Bara munurinn á því að flokkast sem mjó eða feit í læknisfræðilegu tilliti. Og munurinn er mikill á öllum öðrum samkeppnisleiðum þessara tveggja flugfélaga enda rellur Icelandair eldgamlar fram úr hófi og voru framleiddar þegar ekki nokkur maður hafði áhyggjur af hlýnun jarðar.