F lugfélagið Play heldur áfram að bjóða ágæta afslætti af fargjöldum sínum eins og raunin hefur verið næstum frá upphafi. Í þetta skiptið út september ef fólk bókar fyrir 6. ágúst.

Út fyrir minna en ella? Þá er þetta málið. Mynd Play

Það er yfirleitt svona ekki raunin að nýtt fyrirtæki hefji rekstur á að bjóða vörur sínar á afsláttarkjörum nánast strax frá fyrsta degi eins og flugfélagið Play gerði og við fjölluðum um hér. En Play bætir um betur og býður áfram afsláttarkjör út ágúst og september þó aðeins lægri séu.

Um að gera að grípa þá gæsina fyrir ferðaþyrsta en auðvitað hefur fjórða bylgja Covid, og þá sérstaklega nýtt grafalvarlegt afbrigði veirunnar, haft miður góð áhrif. Því þótt ferðalög séu holl og góð svona heilt yfir þá gildir annað um banvænan vírus sem tröllríður mannheimum hvarvetna í heiminum.

Play er að bjóða 20% afslátt á fargjöldum til allra áfangastaða sinna í ágúst og september en sá hængur á að um tilteknar dagsetningar er þar að ræða. Helgarferð frá fimmtudegi til sunnudags mikið til ekki á afslætti en ef þú vilt skottast í Berlín eða Barselóna frá sunnudegi til fimmtudags eru góðar líkur á að fá flugið ódýrara en ella.

Um að gera að kíkja á málið á vef Play en bóka þarf fyrir miðnætti 6. ágúst.