
Enginn hér óbólusettur.
Jú, á öllum ofangreindum stöðum og auðvitað í löndunum sjálfum er þessa dagana engum heimilt að setjast til borðs innandyra á bar eða veitingahúsi nema sýna fram á að viðkomandi sé annaðhvort bólusettur gegn Covid eða hafi þegar fengið sjúkdóminn. Aðrir skulu vera úti.
Írsk stjórnvöld greindu frá þessum reglum í dag en þær eru mikið til þær sömu og gilda nú þegar í Rússlandi, Ísrael, Austurríki og Danmörku. Ástæðan er snarvaxandi fjöldi nýsýktra af svokölluðu Delta-afbrigði Covid en Delta er bæði hættulegra afbrigði og dreifist mun hraðar en þessi upphaflega.
Líklega ekki stórvandamál fyrir Íslendinga sem flestir virðast þekkjast bólusetningu vandræðalaust. En sannarlega vandamál fyrir tugmilljónir Bandaríkjamanna og annarra þjóða kvikindi sem vilja ekki sjá forvarnir gegn skæðum veirusjúkdómi en elska jafnframt ferðalög…
PS: staðfestingu á bólusetningu er hægt að fá á vef Heilsuvera.is.







