
Töluverðu munar á verði í fyrstu athugun Fararheill á fargjöldum Play og Icelandair. Samsett mynd
Við hér sagt áður að brýn þörf sé á flugfélagi á borð við Wow og við fyrsta tékk virðist Play standa undir nafni sem sterkur samkeppnisaðili gagnvart Icelandair. Tæknilega ætti auðvitað að bera Play saman við önnur lággjaldaflugfélög sem hingað fljúga en á það ber að líta að ódýrustu farrými Icelandair eru ekkert betri kostur en það sem lággjaldaflugfélögin bjóða. Stundum meira að segja verri þjónusta um borð.
Örlítið smáa letur þarf að fylgja því taka þarf tillit til að sala farmiða er nýhafin hjá Play en Icelandair selt inn í sumarið frá því í vetur. Þar sem sætisverð hækkar með fleiri seldum miðum gæti það brenglað niðurstöðuna aðeins.
Við leituðum að ódýrustu fargjöldum beggja flugfélaga til fjögurra vinsælla áfangastaða í júlímánuði á sama tíma hjá báðum aðilum. Lægsta verð fram og aftur á sardínufarrými án annars en handfarangurs. Verðmunurinn Play mikið í hag og munurinn þetta 50-120%. Það munar um minna.








