
Lágmarkskrafa að þingmenn hafi meira vit en Andrés Ingi. Skjáskot Twitter
Það þarf ekkert lengi að staldra við á samfélagsmiðlum til að sjá að töluverður fjöldi Íslendinga ætlar barasta ekki að láta bólusetja sig við einu né neinu. Þar á meðal þingmaður landsins sem segir bólusetningu skapa KYNJASKEKKJU!!!
Hjálplegt hjá þingmanninum og gæti orðið til þess að hans fjórir aðdáendur í almenningshópi sleppi því alfarið að fá sprautu.
Gott og blessað. Það er réttur hvers og eins einstaklings að hafna bóluefni og rétt er að sumt fólk tekur bóluefnum verr en aðrir. Í flestum tilvikum er það vegna undirliggjandi sjúkdóma, offitu eða slæms mataræðis. Gildir þá einu hvort um er að ræða bóluefni við Covid-19 eða árlegri flensu.
En burtséð frá degi eða tveimur í rúminu með hita og svita eftir sprautu þá er önnur ástæða fyrir að láta sig hafa sprautu eða tvær. Ef þú sleppir því verðurðu að láta Ásbyrgi og Rauðasand nægja næstu árin þegar þig langar að ferðast.
Leiða má sterkum líkum að því að ekkert land í veröldinni er að fara að taka mót óbólusettum einstaklingum frá landi þar sem allir geta fengið í framtíðinni. Yfirvöld á Tene eru ekkert að bjóða velkomna óbólusetta einstaklinga á næstunni. Þaðan af síður yfirvöld í Tékklandi, Bandaríkjunum, Bretlandi, Ítalíu eða Kúbu.
Og jú, ýmis vafi leikur á þeim efnum sem sprautað er í okkur með hinum og þessum bóluefnunum. Einhverjir gætu dáið og sumir verða frá sér í dag eða tvo. En risastór meirihluti fólks þolir bóluefni án þess að blikka auga og það fólk getur næstu misserin ferðast eins og heimsendir komi í október.
Hinir ekki…







