Æði margt miður gott hefur verið að finna að stefnu Emmanuels Macron, forseta Frakklands, gegnum tíðina. En á stöku köflum kemur stjórn hans sérstaklega sterk inn.

Eftirleiðis gæti orðið erfitt að fljúga styttri vegalengdir með Air France
Frönsk stjórnvöld hafa nýverið fallist á að koma flugfélaginu Air France til bjargar með feitu fjárframlagi enda það flugfélag ekkert betur sett en önnur á heimsvísu.
Sú ákvörðun Frakka kveikti reyndar milliríkjadeilu við Hollendinga því um hríð hefur Air France og hið hollenska KLM verið hluti af sömu grúppu og bæði notið svipaðs ríkisframlags til rekstursins.
Nú horfir svo við að Frakkarnir ætla aðeins að hjálpa Air France en ekki KLM og það vakti eðlilega upp hörð viðbrögð Hollendinga sem ákváðu í kjölfarið að styrkja aðeins KLM en ekki Air France. Fátt sem jafnast á við góða samvinnu eins og Samherjamenn og ráðherrar í Namibíu geta vottað um.
En eitt sérstaklega vakti töluverða athygli við fjárframlag franska ríkisins til Air France. Fjárstuðningurinn er skilyrtur við að flugfélagið hætti því sem næst alfarið að fljúga styttri flugleiðir. Ef hægt er að komast til viðkomandi áfangastaðar með lest á innan við þremur klukkustundum er Air France gert að hætta öllu flugi samstundis.
Þetta gera stjórnvöld í því skyni að minnka mengun en sem kunnugt er mengar flugiðnaðurinn andrúmsloftið duglega. Nútímalestir aftur á móti ganga undantekningarlítið fyrir rafmagni og menga lítið sem ekkert.
Fallist Air France á kröfur stjórnvalda, og þeir geta vart annað, verður varla hægt að fljúga innanlands í Frans eftirleiðis nema með hreyflarellum smærri flugfélaga. Allavega ekki til staða sem státa sig af lestarkerfi.
Súpergott mál ef þú spyrð okkur. Einhvers staðar verður að byrja og í Frans eru lestir almennt nútímalegar, hraðskreiðar og þokkalega ódýr ferðamáti.
Plús fyrir Macron.







