Ekki fæst betur séð á vef lággjaldaflugfélagsins Wizz Air en að þar séu í boði, strax í júní, flugferðir beint til nákvæmlega sömu áfangastaða og flugfélagið hefur boðið upp á síðastliðin ár.

Allir hefðbundnir áfangastaðir Wizz Air héðan halda sér milli ára. Vel gert.

Feitt kúdos á Wizz Air. Ólíkt öðrum lággjaldaflugfélögum sem hafa flogið til og frá Keflavík reglulega undanfarin ár er ungverska flugfélagið hið eina sem heldur sínu striki vandræðalaust. Flogið verður beint til Gdansk, Katowice, Kraká, Varsjár og Wroclaw í Póllandi, Búdapest í Ungverjalandi, Luton í Englandi, Vilníus og Ríga í Eystrasaltslöndunum og Vínar í Austurríki.

Hið hollensk-franska Transavia er sæmilega á parinu, easyJet hið breska líka þokkalegir en fátt sem ekkert er að frétta af Norwegian og Vueling. Hæpið að þau tvö síðastnefndu bjóði mikið hingað til lands eða frá næstu mánuðina.

Þar að auki er óljóst með hið íslenska Play hvenær það flugfélag hefur starfsemi. Þeir segjast tilbúnir í slaginn en þrátt fyrir að sumarið sé tíminn virðist fyrsta flug félagsins ekki detta inn fyrr en með haustinu í fyrsta lagi.

Icelandair ætlar af stað af alvöru um miðjan júní en eðli máls samkvæmt hefur það flugfélag ekki verið að bjóða lægstu fargjöldin gegnum árin og ólíklegt að breyting verði þar á.