Eins dauði annars brauð. Sem er orðatiltæki sem ferðaþjónustuaðilar á Íslandi virðast ekki fatta. Ef þú átt ekki bót fyrir boruna þegar í harðbakka slær deyrðu drottni þínum og þá opnast tækifæri fyrir aðra aðila.

Hvernig hljómar fimm stjörnu gisting með morgunverði á Balí fyrir heilar sex þúsund krónur per nótt eða svo? Skjáskot
Með öðrum orðum: Það vægast sagt stórfurðulegt að öll stærstu ferðaþjónustufyrirtæki Íslands séu á grafarbakkanum fimm mínútum eftir að allt fer í lok, lok og læs. Þetta sami bransi og hefur ár eftir ár eftir ár fengið meiri bissness en nokkru sinni, yfirleitt okrað duglega á öllu, fengið meiri skattaafslætti en pabba Bjarna Ben og er samt með allt lóðbeint niðrum sig.
Fyrir okkur meðalplebbana sem eyðum alls engum upphæðum í græðgispakka innanlands er ráð að líta út fyrir landsteina. Því þegar og ef kóróna fer að láta undan síga er aldeilis hægt að dúlla sér erlendis án þess að þurfa að auka heimildina á kortinu.
Athygli vekur, flakki maður um hótelbókunarvefi þessi dægrin, að sérstök tilboð eða afslættir hjá hótelum hérlendis eru færri en heilasellur forseta Bandaríkjanna. Sem sagt engir. Allt annað uppi á tening erlendis. Þar teygja hótel og gististaðir sig verulega langt til að freista þeirra sem vilja og geta ferðast þegar líður á árið. Hvernig hljómar til dæmis 70% afsláttur á gistingu á fimm stjörnu hóteli á Balí með morgunverði? Hvernig hljómar 62% afsláttur á fjögurra stjörnu hóteli í Munchen? Eða 58% afsláttur á fimm stjörnu gistingu í Bangkok?
Kíktu á bókunarvef okkar hér að neðan. Þeir eru fáir staðirnir þessi dægrin sem bjóða ekki duglega afslætti út allt þetta ár.







