Vefmiðillinn túristi segist hafa heimildir fyrir því að stjórnendur „flugfélagsins Play” séu í startholum með lággjaldaflugfélagið sitt. Er eitthvað að marka það?

Play loks komið með fjármagn til reksturs í miðjum kórónafaraldri? Skjáskot
Velflestir fjölmiðlar landsins birt fregnir af því að það sé loksins play en ekki pása hjá flugfélaginu Play og vitna til heimildarmanna ferðavefsins túrista.
Þar kemur fram að „flugfélagið” sé þegar með eina rellu klára í slaginn um leið og aðstæður leyfa og ætli aldeilis að gera garð frægan með túrum til Alicante, Köben, London, Parísar og Tenerife.
Hmmm! Nokkrar spurningar sem vakna hjá okkur en ekki útlærðum starfsmönnum fjölmiðlanna.
Spurning 1: Ef Play er raunverulega komið á koppinn hvers vegna er ekki hægt að bóka eina einustu ferð á vef þeirra nú 29. mars? Má ekki gera þokkalega ráð fyrir að flogið verið til og frá landinu í nóvember eða desember til að mynda? Væri þá ekki eðlilegt að flugfélag í startholunum byði upp á fargjöld langt fram í tímann?
Spurning 2: Gera má ráð fyrir að heimildarmenn túrista sé innanbúðarfólk hjá Play. Það er sama innanbúðarfólk og sagði fjölmiðlum í byrjun nóvember að fyrsta flug félagsins yrði strax í byrjun þessa árs. Sama fólk og sagði fjármögnun tryggða strax í nóvember sem svo reyndist ekki vera raunin.
Spurning 3: Hvað meina heimildarmennirnir með „þegar aðstæður leyfa.” Þegar aðstæður leyfa er verulega teygjanlegt hugtak. Er verið að meina þegar grænt ljós fæst á flug til Alicante eða Tenerife? Þá þarf hugsanlega að bíða fram til desember eða janúar miðað við yfirlýsingar stjórnvalda á Spáni. Eða er verið að meina þegar flug getur staðið undir sér? Það er jú líklegt að engin verði utanlandsflug næstu mánuðina án þess að miðjusæti sé autt eða að sæti beggja vegna við miðjusæti verði auð sökum sýkingarhættu. Með öðrum orðum að rellurnar verði bara nýttar 50 – 66 prósent í besta falli. Er Play að bíða eftir því eða er biðin eftir að grænt ljós fáist á 100 prósent nýtingu í farþegarýmum?
Þetta allt loðnara en loforð Sigmundar Davíðs í stóli forsætisráðherra. Loforð sem voru svo innantóm að yfirmenn Orðabókar háskólans hafa nú sett mynd af Sigmundi Davíð við orðið loðið í orðabókinni.







