Við hér fengið allnokkur skeyti frá ferðaþyrstum í kórónaþynnku sem vilja okkar álit á hvert gæti verið gáfulegt að ferðast þegar og ef það tekst að hemja þennan vírusfjandi á næstu misserum. Tvö lönd koma sérstaklega sterkt inn.

Hinar mögnuðu strendur Mexíkó við Mexíkóflóa verða á flóamarkaðsverði næstu árin.

Alls óljóst hversu margir láta sig hafa flug og ferðir þegar lönd heims hafa afnumið hvers kyns takmarkanir og sóttkvíar.

Margir spekingar spá því að hræðsla við smit verði of mikið til að ferðaiðnaðurinn á heimsvísu geti náð viðspyrnu fyrr en 2021 eða 2022 í allra fyrsta lagi. Aðrir spekingar segja alla þessa innilokun verða þess valdandi að allur sem vettling geta valdið æði að stað erlendis við fyrsta hanagal. Sem auðvitað segir okkur allt sem segja þarf um „sérfræðinga.” Þeir vita sjaldan meira en við hin 😉

Engin spurning um að hver einasta þjóð heims reynir sitt besta til að tæla ferðamenn þegar sá tími kemur. Íslandið ljúfa í góðum málum þar því krónan okkar hefur fallið hraðar gagnvart dollar en hlutabréf í Trabant-verksmiðjunum.

Heilt yfir má slá föstu að öll lönd hvers gjaldmiðill hefur fallið duglega (lesist: næstum öll) munu heilla þá fáu eða mörgu sem þrá flug og ferðir þegar allt vesenið er um garð gengið. Þá auðvitað skiptir mestu máli hvaða gjaldmiðlar hafa fallið gagnvart íslensku krónunni. Þeir miðlar ívið færri því krónudruslan okkar Íslendinga hefur ekki beint verið að rokka með Geirmundi Valtýs þessa síðustu og verstu.

Veðjað á Tyrkland og Mexíkó

Við hér á Fararheill, fávíst áhugafólk auðvitað, telur þjóðráð að fara að skoða hvað skemmtilegast er að gera í Tyrklandi annars vegar og Mexíkó hins vegar. Það helgast af tvennu. Annars vegar að bæði lönd hafa verið og eru hræbilleg heimsóknar fyrir krónueigendur og hins vegar af því að efnahagur beggja landa mun versna hræðilega næstu vikur og mánuði.

Ástæða þess er sú að velflest fyrirtæki í báðum löndum, þar með talin ferðaþjónustufyrirtæki og mörg stór hótel, hafa undanfarin ár tekið lán sín í bandarískum dollurum þó tekjurnar séu í mynt heimalandsins. Nú er staðan sú að meðan dollarinn heldur sínu fellur mexíkóskur pesó og tyrknesk líra hraðar en æra Pálma Haraldssonar. Meira að segja hraðar en íslensk króna.

Báðar þjóðir þokkalega staddar eins og sakir standa en því lengur sem kóróna gerir usla því meira verður fallið hjá öllum þjóðum hvers gjaldmiðill er rammtengdur dollar. Og með tilliti til að bæði Tyrkland og Mexíkó hafa ALLTAF verið hræbillegir áfangstaðir fyrir Íslendinga er óhætt að kætast yfir óförunum 🙂

PS: ekki láta þér detta til hugar að það hlakki í okkur ef allt fer fjandans til í Mexíkó eða Tyrklandi. Þvert á móti. Þegar þú ert á botninum skiptir hver pesó, líra eða króna máli. Allt hjálpar.