Sennilega tæki það utanríkisráðherra, sjálfstæðismanninn Guðlaug Þór, fimmtán mínútur að skipa sínu fólki að gera íslenska vegabréfið það besta í heiminum. En Gulli litli er of bissí að sleikja rassa mannhatara á borð við Mike Pence og Mike Pompeo. Fólks sem telur að megafávitinn Donald Trump hafi verið sendur af Guði sjálfum til jarðar.

Íslenskt vegabréf er einna lakast í allri Evrópu.

Íslenska vegabréfið ætti að vera það flottasta á jarðkringlunni. Landið lítið, þjóðin fámenn, enginn her og hvar sem við komum eru allir upp með sér að hitta okkur. Við erum ógn við ekkert ríki og enga sál.

Alas, ekki alveg svo. Íslenska vegabréfið er einna lélegast í Evrópu samkvæmt nýlegri úttekt.

Í stað þess að vera best og mest hvað varðar að koma okkur hingað og þangað án þess að sækja um áritun og hvaðekki hjá hinum og þessum erlendum sendiráðum þá erum við á báti með Lettlandi og Slóveníu í 30. sætinu yfir merkilegustu vegabréfin í veröldinni. Af evrópskum löndum eru það einungis vegabréf Möltu, Andorra, Króatíu, Kýpur og Póllands sem eru lélegri en okkar!!!

Halló halló bara. Gulli þarf að hættu endalausum rassasleikjum og girða upp um sig. Við erum friðsælasta ríki heims og eigum að toppa lista yfir mestu og bestu vegabréfin. Punktur!