Margt verra undir sólinni en flatmaga á mjallhvítum ströndum Cancún í Mexíkó með vorinu. Þangað er nú komist fram og aftur fyrir sirka hundrað þúsund krónur á kjaft ef fólk er sniðugt.

Kanaríeyjur ekkert slor en þetta er fimmta flokks…

Icelandair flýgur lóðbeint héðan til Montreal og Toronto í Kanada og frá þeim borgunum er hægt að fljúga um hvipp og hvapp þokkalega auðveldlega. Þar á meðal beint til hinnar sívinsælu Cancún á Yucatan-skaga Mexíkó.

Túrinn atarna kostar yfirleitt 150 þúsund og upp úr fyrir landann alla leið héðan fyrir flugið eitt og sér en nú bregður svo við að mexíkóska flugfélagið Interjet býður súperkjör á flugi frá Toronto og Montreal með vorinu á allnokkrum dagsetningum. Allt niður í 35 þúsund krónur fram og aftur.

Það er vel gert og við skoðun á fargjöldum Icelandair til þessara borga með vorinu má þar finna fargjöld allt niður í 50 til 60 þúsund krónur eða svo.

Sem þýðir að Cancún er okkar fyrir sirka hundrað þúsund kall á kjaft ef ekki er tekið tillit til að fáránlegt er að fljúga til Montreal eða Toronto og ekki stoppa þar stundarkorn. Tvær flugur og allt það 🙂

ICELANDAIR TIL TORONTO OG FRÁ Í MAÍMÁNUÐI 2020.

 

INTERJET TIL CANCÚN OG FRÁ Í MAÍMÁNUÐI 2020

 

Ferð sem þessa verðið þið að setja saman sjálf við eldhúsborðið heima. Það eða punga út rúmlega hálfri milljón og fara með ferðaskrifstofu. Út með þig 🙂