Fátt unaðslegra en njóta aðventustemmningar í gömlum evrópskum borgum. Það vita margir enda eru velflestar aðventuferðir innlendra ferðaskrifstofa orðnar uppseldar eða komnar langleiðina. En hvernig hljómar að njóta aðventunnar í einni fegurstu borg Evrópu fyrir heilar ELLEFU ÞÚSUND KRÓNUR?

Þær verða ekkert mikið klassískari en Vínarborg í Austurríki.

Allnokkrar ferðaskrifstofur bjóða okkur aðventuferðir til Evrópu. Þær oftar en ekki þriggja til fjögurra nátta túrar og prísinn virðist að lágmarki vera 120 þúsund á haus miðað við tvo saman. Sem er vægast sagt galið verð þegar haft er í huga að þú og þið getið skottast í aðventuferð til Vínarborgar í desember fyrir svo mikið sem ellefu þúsund krónur á mann!

Það er lægsta verðið á flugi með Wizz Air frá Keflavík og heim aftur í vikutíma í desember næstkomandi þegar þetta er skrifað. Vissulega án farangurs annars en handfarangurs en kjósi fólk að taka alvöru tösku með hækkar verðið í 26 þúsund krónur.

Nú kann einhver að benda á að engin sé aðventuferðin án gistingar en það lítið mál að kippa því í liðinn og samt njóta án þess að kosta of miklu til. Á hótelvef Fararheill má til dæmis finna vikudvöl á fjögurra stjörnu Hilton í vikutíma fyrir sléttar hundrað þúsund krónur í desember. Sem þýðir að túrinn á kjaft, miðað við tvo saman, kemur út á 61 þúsund krónur að lágmarki eða 79 þúsund með tösku.

Berðu það saman við vikulanga aðventuferð Bændaferða til sömu borgar. Ferð sem kostar manninn 229.900 krónur eða tæplega 460 þúsund krónur alls!!!

Víst er fararstjóri með í för Bændaferða og kvöldmatur líka en á móti kemur að alls ekki er flogið til Vínar né frá heldur til Munchen og fólk þarf að hýrast í rútu á milli í átta klukkustundir fram og til baka eða svo. Sá pakki aðeins 480% dýrari en að fljúga beint, negla hótel hér að neðan, og ekki þarf leiðsögn til að rata á aðventumarkaðinn mikið. Svo má kaupa átta þúsund kvöldverði eða svo fyrir mismuninn…