Hmmm. Varla flett vefmiðli, dagblaði né tímariti Votta Jehóva þessi dægrin án þess að rekast á feitar greinar um þörfina á að kolefnisjafna ferðalögin okkar. Það hafa ýmis íslensk fyrirtæki þegar gert en meðal þeirra ekki ein einasta ferðaskrifstofa!

Mengun í Nýju-Delí á Indlandi í vikunni. Spennandi ekki satt?

Bónus, ÁTVR, Vodafone og Hafnarfjarðarbær eru meðal þeirra aðila sem hafa kolefnisjafnað allan sinn rekstur á yfirstandandi ári. Allnokkur ferðaþjónustufyrirtæki sem sinna erlendum ferðamönnum einnig gert slíkt. Það til eftirbreytni því öll mengun er slæm mengun og framtíð alls lífs á jörðu er undir.

Þess vegna vekur athygli að ekki ein einasta ferðaskrifstofa eða flugfélög sem sinna okkur Íslendingum hefur séð ástæðu til að jafna út mengun. Ekki Heimsferðir, ekki Úrval Útsýn, ekki Plúsferðir, ekki Sumarferðir, ekki Vita, ekki GB Ferðir, ekki Bændaferðir og hvorki Air Iceland Connect né Icelandair. Þó eru ferðaskrifstofur/flugfélög að menga töluvert meira en Vodafone, Össur eða ÁTVR.

Icelandair var á sínum tíma í fararbroddi, langt á undan öðrum, að bjóða viðskiptavinum upp á að kolefnisjafna flugferðir sínar en fyrirtækið hætti að bjóða það fyrir tveimur árum eða svo í sama mund og umræðan um kolefnisjöfnun fór á flug. Flugfélagið á að sjálfsögðu að hætta öllum arðgreiðslum eða uppkaupum á eigin hlutabréfum hið snarasta og nota aurinn til að kolefnisjafna flugferðir sínar eigi síðar en í gær nema þeim sé slétt sama um veröldina.

Sjálfsagt og eðlilegt að greiða aðeins meira fyrir flug og ferðir en nú er ef það merkir hugsanlega að börnin okkar og barnabörn anda að sér ferskara lofti en ella. Tíminn vinnur ekki beint með okkur í þessu tilliti…