Í þann mund sem maður heldur að hlutirnir geti ekki orðið verri þá verða þeir verri. Fréttastofa Reuters hefur komist yfir tölvupóstsamskipti yfirflugmanns Boeing sem sýna að sá gerði verulegar athugasemdir við svokallaðan MCAS-búnað í hinum nýju Max-vélum strax árið 2016. Sama búnað og talinn er ábyrgur fyrir tveimur flugslysum sem drógu hundruðir til dauða.

Max-vél Boeing. Nú er fyrirtækið sekt um að leyna gögnum sem varðar gætu tvö alvarleg flugslys.
Til að bæta gráu ofan á svart hjá þessum bandaríska flugvélaframleiðanda þá voru þessi gögn Boeing ekki afhent Flugmálastofnun Bandaríkjanna fyrr en í þessari viku þó sú stofnun hafi krafist allra gagna frá fyrirtækinu snemma á þessu ári.
Ljóst má vera að fyrirtæki sem lætur ekki öll gögn af hendi til eftirlitsstofnanna þegar líf liggja við á alls ekki að vera í rekstri. Að leyna gögnum þegar fyrirtækið hefur mögulega líf fleiri hundruða einstaklinga á samviskunni er ekkert minna en viðbjóðslegur glæpur.
Hér má lesa frétt Reuters. Og nota bene: enginn hér á ritstjórn ætlar nokkurn tíma að stíga fæti aftur í vélar Boeing af Max-gerð. Mælum með að þú gerir það sama. Svona fyrirtæki á að fara rakleitt á hausinn sem fyrst.







