Jahérnahér!!! Spekingar Icelandair hafa nú fundið út að flug til Kansas í Bandaríkjunum sé vænlegur biti og hefst beint flug þangað strax í maímánuði. Það er kjánaleg hugmynd í meira lagi.

Fyrsta flug Icelandair til Kansas á döfinni. Er það virkilega plús fyrir flugfélagið eða Íslendinga? Mynd Icelandair
Fæst orð hafa minnstu ábyrgð en fari í heitasta helvíti hvað Icelandair er að gera sig breiða á alls óþekktum mörkuðum vestanhafs. Nú síðast fyrir viku tilkynning um að Kansas City í Kansas-fylki sé næsta stopp flugfélagsins og regluleg flug þangað og þaðan hefjast strax í maí á þessu ári.
Kansas er stórborg í stóru fylki og þaðan er ekkert flugfélag að bjóða flug lóðbeint til Evrópu. Fyrr en nú þegar Icelandair tekur upp kyndilinn.
Líklegt má telja að þetta flug sé hundrað prósent miðað við íbúa Kansas því þeir Íslendingar sem hafa áhuga á ferðum í því fylkinu telja sirka fjóra eða svo og eru allir bændur sem elska hveiti og sólblóm. Sem er það tvennt sem Kansas er þekkt fyrir vestanhafs.
En við veltum fyrir okkur hvers vegna EKKERT flugfélag hefur nokkru sinni boðið beint flug frá Kansas til Evrópu. Okkur finnst afar líklegt að American Airlines, Delta Airlines og United Airlines, stærstu flugfélög Bandaríkjanna, hafi ábyggilega ítrekað skoðað möguleikana á beinu flugi frá Kansas til Evrópu en komist að því að það borgar sig ekki. Né heldur hafa risaflugfélög á borð við KLM, Air France, British Airways eða Ibería sýnt þeirri leiðinni nokkurn áhuga.
Og að ímynda sér að íslenskir spekingar í Vatnsmýrinni séu með meiri eða betri upplýsingar en risaflugfélögin er langsótt.
Þetta er 50/50 í besta falli!







