Þá sjaldan kurl koma opinberlega til grafar. Sitjandi forstjóri Icelandair sendir fyrrverandi forstjóra Icelandair feitar pillur í Financial Times. Sömu pillur og við hér höfum sent um margra ára skeið 🙂

Bogi sér ljósið loksins

Alltaf gott þegar spekingar sjá ljósið. Ekki hvað síst þegar sömu spekingar reka fyrirtæki sem nær alfarið er á lífi sökum lífeyrissjóða landsmanna.

Samkvæmt vefmiðlinum Vísi lýsir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, miklu frati á hugmyndir fyrri forstjóra, Björgólfs Jóhannssonar, í viðtali við breska dagblaðið Financial Times. Svo miklu frati að yfirstjórn Icelandair vinnur hörðum höndum að því að keyra til baka allar helstu ákvarðanir Björgólfs.

Forstjórinn þar með LOKSINS að taka undir með ritstjórn Fararheill sem hefur gagnrýnt Björgólf linnulítið undanfarin ár. Enda þarf jú afar sérstaka manneskju til að reka stærsta flugfélag landsins, tapa milljörðum króna og fæla fjárfesta frá í tonnavís á sama tíma og megafeit ferðamannasprengja á sér loks stað á farsæla Fróni.

Ef bara Bogi Nils hefði lesið vef Fararheill síðustu árin…