Ef bara Reykjavík væri eitthvað í átt við okkar gömlu höfuðborg Kaupmannahöfn. Danirnir varla heimsóttir án þess að höfuðborgin státi af einhverju nýju og spennandi á fimm mínútna fresti sem miðast við borgarbúa en ekki erlenda ferðamenn.

Kaupmannahafnarbúar að eignast sína eigin skíðabrekku við Amager.
Ók, kannski fullhart tekið á árinni að segja að næsta skíðaferð verði til Köben enda þar engin fjöll frekar en annars staðar í landinu og ef engin eru fjöllin er skíðaiðkun önnur en skíðagöngur frekar langsótt sport.
Nema danskurinn kann ráð við því. Hvers vegna ekki að breyta þreyttum og ljótum risavöxnum verksmiðjum á Amager í príma útivistarsvæði?
Og það er að verða raunin að Kaupmannahöfn eignist sína allra fyrstu „skíðabrekku.” Sú kallast Copenhill og er bókstaflega fyrirtaks skíða- og brettabrekka ofan á forljótri reykspúandi verksmiðju.
Til stóð að opna Copenhill fyrir gestum og skíðandi strax þetta vorið en tafir verða á og nú gert ráð fyrir að svæðið opni með haustinu. Og auðvitað þarf ekkert að kunna á skíði til að skoppast um hér. Kaffi, smørrebrød og áfengi auðvitað í boði á veitingastað á „skíðasvæðinu” og því leikur einn, eftir nokkra kalda, að láta sem maður sé í brilljant brekkum Alpafjalla en ekki ofan á megaljótri verksmiðju.
Um að gera að taka frá tíma fyrir Amager á leið um Köben. Þar verið að breyta fremur ógeðslegu svæði í hreint ágætan samastað fyrir útivistarfólk af öllu tagi.
PS: Fyrir þá sem ekki þekkja Amager þá er það úthverfi Köben til austurs. Nánar tiltekið á sömu slóðum og Kastrup-flugvöllur 🙂







