Upp komast svik um síðir. Nú greina tveir bandarískir fjölmiðlar frá því að það hafi alls ekki verið flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum sem vottuðu öryggi og flughæfni Boeing Max véla eins og lög gera ráð fyrir. Neibbs, sérfræðingar Boeing gerðu það bara sjálfir.

Alltaf traustvekjandi þegar fyrirtæki votta sig sjálf. Sérstaklega í flugrekstri. Mynd Boeing

Ekki furða að Bandaríkin sé hnignandi stórveldi. Þar hefur allt verið einkavætt sem hugsast getur og eftirlit allt í mýflugumynd. Eins og til að mynda hvað varðar vottun og úttekt á að nýjar farþegaþotur standist fyllstu kröfur um flughæfni og öryggi áður en farþegaflutningar hefjast.

Í ljós kemur að bandarísk flugmálayfirvöld, sem eiga að ganga úr skugga um ofangreint, létu í mörgum tilfellum hjá líða að skoða og greina Max-vélarnar og tóku orð sérfræðinga Boeing fyrir því að allt væri í orden.

Hmmm. Hvað getur nú farið úrskeiðis þegar fyrirtæki rannsaka sig sjálf? Ætli Byko hefði greitt hundruð milljóna í sektir ef Samkeppnisstofa hefði útvistað rannsókn á hugsanlegum samkeppnislagabrotum til yfirmanna Byko?

Bæði Seattle Times og Los Angeles Times greina frá því að ekki var alveg rétt staðið að öryggisprófunum á Boeing Max vélunum en tvær slíkar hafa hrapað til jarðar sísona með skömmu millibili með verstu hugsanlegu afleiðingum fyrir hundruðir einstaklinga.

Reyndar virðist vandamálið ekki nýtt af nálinni því stöku starfsmenn Flugmálastjórnar Bandaríkjanna, FAA, hafa kvartað yfir slíkri útvistun um SJÖ ÁRA SKEIÐ!!!

Spennandi tilhugsun ekki satt?