Eitt allra heitasta umræðuefnið á veraldarvefnum þessa síðustu og verstu er kyrrsetning Boeing-Max véla vegna tveggja flugslysa með skömmu millibili og að því er virðist við svipaðar aðstæður.

Sérstakur flughermir fyrir Boeing Max er staðsettur hérlendis. Engum blaðamanni dottið í hug að fá erfiðan flugtúr með reyndum flugmönnum og skrifa um reynsluna…
Ekki þarf lengi að stúdera hina ýmsu flugvefi til að sjá að fólk og flugmenn skiptast í þessu máli eins og Bretar með Brexit eða Bandaríkjamenn með byssur. Þokkalega 50/50 eða svo.
Kyrrsetning næstum 400 véla af þessari tegund um heim allan kann að virðast eðlilegt skref ef það er raunverulega svo að sterk líkindi séu með flugslysinu í Eþíópíu og flugslysinu í Indónesíu fimm mánuðum áður. Það virðist vera raunin svona utanfrá og miðað við þær takmörkuðu upplýsingar sem fjölmiðlar geta gefið okkur.
En slík kyrrsetning, mögulega mánuðum saman, mun ekki aðeins kosta Boeing orðsporið og tugmilljarða króna heldur mögulega setja hin og þessi flugfélögin lóðbeint á hausinn. Plús mögulega setja ferðir hinna og þessara í uppnám.
Á flugmiðlum má lesa býsnin öll af hugsanlegum orsökum og viðbrögðum frá hundruðum flugmanna. Sumir segja sáraeinfalt að bregðast við tölvustýrðum vandamálum við flugtak meðan aðrir telja það ekki svo klippt og skorið. Sumir flugmenn gera lítið úr flugmönnum þeirra Max-véla sem farist hafa og segja þá skorta reynslu og þekkingu. Aðrir segja ómögulegt að læra viðbrögð við hlutum sem Boeing hefur breytt og alls ekki sagt neinum frá.
Ekki svo að skilja að það breytti einhverju í stóru myndinni en svo vill til að Icelandair á og rekur Boeing-Max flughermi í Hafnarfirði. Er svo vitlaust að Moggi eða Fréttablað sendi mann á vettvang með vönum flugstjórum og „fljúgi” þar gegnum ýmsar hugsanlegar þrengingar í flugtaki og skrifi um viðbrögð flugmannanna?
Við hér myndum senda mann í slíkt en Icelandair þolir ekki gagnrýni og vill lítið við okkur tala. En fyrir aðra aðila væri það æði góð hugmynd og efalítið fyrir lesendur líka.







