Ó hve farsæla Frón væri mikið farsælli ef Danir réðu enn lögum og lofum yfir klakabúum á Íslandi í stað heilaskertra íslenskra stjórnmálamanna. Þá væri til dæmis helstu ferðamannastöðum barasta lokað meðan heimamenn lagfæra það sem aflaga hefur farið og ekki einum ferðaþjónustuaðila dettur í hug að væla yfir tekjumissi og ríkisafskiptum.

Yfirgangur ferðafólks? Færeyingar kunna ráð við því.

Með öðrum orðum: sú græðgisvæðing sem er gegnumsýrð í íslenskri ferðaþjónustu þar sem engu skiptir hversu mikið er troðið niður og eyðilagt er ekki vandamál í Færeyjum.

Sem er ástæða þess að þú ættir ekki að heimsækja þetta fagra eyríki í næsta mánuði. Nánar tiltekið lokahelgina í þeim mánuði. Þá kemurðu að lokuðum dyrum að öllum helstu ferðamannaperlum Færeyja. Enginn kemst að nema fuglinn fljúgandi.

Þá helgi, 26.-28. apríl, ætla náttúruunnendur – í algjöru sjálfboðastarfi – að lagfæra það sem aflaga hefur farið vegna ágengni ferðamanna á velflestum vinsælustu áfangastöðum landsins. Og þetta í landi sem glímir í raun ekki við neina ferðamannasprengju eins og stóri bróðirinn í norðri.

Færeyingar vita nefninlega sem er, og þar ferðaþjónustuaðilar meðtaldir, að ef allt er í niðurníðslu og kraðaki á vinsælum ferðamannastöðum þá geldur náttúran fyrir og ef hún er ekki tipp-topp hætta ferðamenn að heimsækja. Það er nefninlega enginn að koma til Íslands til að heimsækja mengaða Reykjavík.

Óvitlaus hugmynd hjá íslenskum stjórnvöldum að ráða færeyska ferðamálaráðið í heild sinni til að sjá um ferðamál á Íslandi.

<script src=“https://sbhc.portalhc.com/97262/searchbox/455962″></script>