Önnur glæný Boeing Max farþegaþota hrapar til jarðar fimm mínutum eftir flugtak í Eþíópíu. Ef um eitthvað annað fyrirtæki væri um að ræða en Boeing væru líklega allar slíkar rellur jarðsettar á meðan rannsókn fer fram.

Max-vélar Boeing þegar dregið yfir 300 manns til dauða. En Icelandair ætlar að keyra þær vélar áfram no matter what. Mynd Boeing
Boeing Max vél ríkisflugfélags Eþíópíu, stærsta flugfélags Afríku, brotlendi nokkrum mínútum eftir flugtak í fyrrinótt. Rellan ekki orðin tveggja ára gömul og æði margt sameiginlegt með þessu hrapi og flugslysi Lion Air í Indónesíu sem einnig hrapaði með hörmulegum afleiðingum nokkrum mínútum eftir flugtak.
Sama nýlega vélin og sömu fínu kringumstæður. Ekkert að veðri og allt príma þangað til vélarnar hröpuðu fyrirvaralítið.
Illu heilli er þetta sú rella sem Icelandair hefur veðjað á og ætlar að skipta út öllum sínum gömlu rellum fyrir Boeing Max vélar á næstu árum. Þegar þrjár slíkar í notkun hjá flugfélaginu og nokkrar aðrar á leiðinni.
Það skondna er að engin niðurstaða er enn komin fram í flugslysinu í Indónesíu fyrir tæpu ári og flugslysanefnd Eþíópíu hefur aldrei fengið verðlaun fyrir hraðrannsóknir. Í því ljósi er ekki fráleitt að ætla að forstjóri flugfélags sem notast við slíkar vélar í rekstrinum lýsi yfir að þær rellur verði kyrrsettar á meðan óljóst er hvað vandamálið er.
En ekki Icelandair. Á þeim bænum taka menn bara sjénsa áfram…







