Þú líklega aldrei heyrt talað um flugfélagið Neos fyrr en nú. Sú vitneskja sparar þér vel rúm 20 prósent á fargjaldinu ef ætlunin var að heimsækja Mílanó á Ítalíu í sumar.

Lifandi og blómleg er Mílanó allt árið um kring og tonn að sjá og skoða.
Ítalska borgin er góð heim að sækja eins og segja má um velflesta staði þar í landi. Merkilegt nokk er samkeppni á flugi til hennar frá Keflavík en bæði Icelandair og Wow Air fljúga reglulega í sumar. Vissulega fákeppni en þó sýnu betra en einokun.
Hvorug íslensku flugfélaganna eiga þó breik í fyrrnefnt Neos sem er ítalskt flugfélag sem einnig flýgur töluvert á milli næsta sumarið.
Við kíktum á flug fram og aftur á fjórum mismunandi dagsetningum hjá flugfélögunum þremur og ódýrasta fargjald Neos er aldrei minna en 20 prósent lægra en Icelandair eða Wow Air bjóða lægst. Í sumum tilfellum er verðmunurinn 40% og það þrátt fyrir þá staðreynd að bæði handfarangur og hefðbundin töskudrusla er innifalin í lægsta fargjaldi Ítalanna PLÚS að matur er einnig í boði frítt. Ekkert slíkt í boði hjá þeim íslensku nema kaupa megasúpersæti, eða hvað þau kallast nú dýrustu fargjöldin hér heimavið. Þó skal því haldið til haga að farangursheimildir þeirra íslensku eru aðeins rýmri.
Sjálfsagt að skoða þetta í þaula ef Mílanó heillar. Vefur Neos.







