Geir Haarde besti vinur aðal í Alþjóðabankanum. Hreiðar Már Sigurðsson að gera gott mót gegnum múttu sína í ferðabransanum. Ólafur Ólafsson notar einkaþyrlu til að komast frá A til B og Pálmi Haraldsson ætlar að gera sig gildandi í flugfélaginu Icelandair.

Smekkmaður á fatnað og gleraugu. Nú vill Pálmi Haraldsson ná tökum á lífeyrissjóðsfyrirtækinu Icelandair. Skjáskot RÚV

Jamm, ætlar einhver þarna úti svo að halda því fram að Íslendingar séu ekki ævintýraleg fífl? Eða hvar annars staðar, að Bandaríkjunum frátöldum, fá 100 prósent skíthælar ekki aðeins að valsa lausum hala heldur moka inn seðlum eins og það sé 2007 all over again?

Athyglisverð grein í Fréttablaðinu þennan daginn. Pálmi Haraldsson, þú veist, þessi sem svindlaði á okkur um áraraðir hjá Sölufélagi garðyrkjumanna og kostaði skattgreiðendur tugmilljarða króna í bankahruninu, brosir nú í bankanum vegna þess að vitlaus landinn verslar við Úrval-Útsýn eins og enginn sé morgundagurinn. Hagnaðinn notar karl til að kaupa hlutabréf í lífeyrissjóðsfyrirtækinu Icelandair og hefur nú keypt nægilega stóran hlut til að koma að sínum eigin stjórnarmanni í stjórn þessa stærsta flugfélags landsins.

Eins og við þurftum enn eina ástæðuna til að hætta viðskiptum við Icelandair!!!