Æði áhugaverðir hlutir að gerast í flugi til og frá landinu næsta vor, sumar og haust samkvæmt upplýsingum Ísavía ohf. Og sem fyrr fer það alveg framhjá steingeldum innlendum fjölmiðlum.

Flugumferð til og frá Íslandi frá apríl til október á þessu ári samkvæmt upplýsingum frá Ísavía.

Hver einasti fjölmiðill íslenskur hefur undanfarið fjallað um breyttar aðstæður í flugi til og frá Íslandi á næstu misserum. Flestir hafa birt meðfylgjandi töflu sem sýnir hvað hin ýmsu flugfélög ætla sér mikið – eða lítið – á helstu vertíðinni framundan.

Þar kemur meðal annars fram að Icelandair hyggst fjölga ferðum til og frá um 14% frá liðnu ári. Sem kann að virðast framsækið og jafnframt hæfilega varleg aukning svona með tilliti til erfiðra aðstæðna fyrir mörg flugfélögin.

En það er algjört djók þegar mið er tekið af því að Wow Air hyggst draga saman vængi um hvorki meira né minna en 44% á sama tímabili. Þar ætti Icelandair að sjá sæng sína útbreidda í einum grænum enda er Ísland ekkert að fara að detta úr tísku. Landið okkar er eitt hið fallegasta í veröldinni og hættir ekkert að vera það næsta sumar. Og hér ágætt að hafa hugfast að Wow Air var, fyrir þrengingar og vitleysishátt forstjórans, að flytja svipaðan fjölda farþega til landsins og frá og Icelandair. Þarna skapast mikið tómarúm og alvarlegt metnaðarleysi hjá Icelandair að grípa ekki gæsina báðum höndum.

Enginn fjölmiðill kannar heldur hversu líklegt er að farþegum Wow Air fækki aðeins um 44 prósent. Miðað við hversu lengi það tekur flugfélagið að ná samningum við bandarískan auðjöfur um bráðnauðsynlega innspýtingu fjármagns er ekki fjarri lagi að ætla að Wow Air verði alls ekki starfandi næsta sumar. Án þeirra tæplega tíu milljarða sem sá bandaríski vill greiða fyrir helmingshlut í Wow Air fer það flugfélag í gröfina á fimm mínútum sléttum.

Illu heilli ætla bæði Norwegian og easyJet að fækka flugferðum til og frá landinu. Illu heilli sökum þess að það eru þau tvö flugfélög sem bjóða okkur reglulega hvað lægst verð í skottúr til Evrópu og heim aftur. Sömuleiðis er British Airways að fækka ferðum sem og hið spænska Iberia Express. Þau bæði eru í eigu sama fyrirtækis.

Á móti kemur að franska lággjaldaflugfélagið Transavia ætlar að fjölga ferðum á klakann. Sömu sögu má segja um hið ungverska Wizz Air og hið þýska Eurowings heldur í horfinu. Bæði flugfélög þekkt og vinsæl lággjaldaflugfélög. Eurowings sér væntanlega sóknarfæri í því að þýska flugfélagið Germania heyrir nú sögunni til en hið síðarnefnda flaug hingað mjög reglulega áður en brotlent var með látum nýlega.

En kannski það allra athyglisverðasta við upplýsingar Ísavía eru tvö flugfélög sem nánast enginn þekkir sporð né deili á; Atlantic Airways og S7.

Atlantic Airways ætlar að fjölga ferðum um 663 prósent!!! Flugfélagið S7 fjölgar ferðum um um 164%.

Hver þremillinn er svo Atlantic Airways og S7?

Jú, merkilegt nokk er Atlantic Airways ríkisflugfélag Færeyja og flugfélagið S7 er með bækistöðvar í Síberíu. Hvers vegna þessi tvö flugfélög sjá bullandi sóknarfæri skal ósagt látið en þetta bendir til þess að við komumst til Þórshafnar og Moskvu á súperverði næsta sumarið. Moskva kannski ekki mekka í huga margra nema íbúa á Neskaupsstað en Þórshöfn er snilldin ein og enginn skyldi gleyma að færeyska flugfélagið flýgur beint til flottra spænskra strandstaða frá Færeyjum og oft á fínu verði.

Verum grimm að velja erlend flugfélög sem flytja okkur á skemmtilega staði í beinu flugi. Ef við gerum það ekki fella flugfélögin ferðirnar niður áður en við getum sagt heibabbílúlla upphátt.