Það liggur við nú til dags að það sé hreinn og beinn mínus fyrir sprotafyrirtæki að ná góðri stöðu á markaði á skömmum tíma. Það þýðir aðeins að risafyrirtæki gleypa viðkomandi upp með húð og hári eins fljótt og auðið er.

Sexfaldur heimsmeistari í gistibókunum hefur nú verið seldur skítafyrirtækinu Booking.

Það er með þungu hjarta sem lesendum okkar tilkynnist að hið ömurlega fyrirtæki Booking.com gleypti fyrir skömmu okkar ástsæla bókunarvef HotelsCombined.

Eðli máls samkvæmt munum við ekki lengur auglýsa þá þjónustu enda er Booking.com eitthvað viðbjóðslegasta fyrirtæki jarðar. Þó ekki sé nema vegna milljarðanna sem eigendur þess geyma í skattaskjólum og brosa í bankanum 24/7.

Við hér þegar hafið leit að öðrum aðilum sem bjóða súpergóð kjör á gistingu um víða veröld en stunda ekki skattsvik lon og don eins og Booking.com. Það tekur tímann sinn en góðir hlutir koma til þeirra sem bíða eins og biblían segir okkur.

Þangað til biðjumst við velvirðingar.