Aðventuferðir erlendis gerast sífellt vinsælli enda flugfargjöld verið súperlág nú um sex ára skeið eða svo hingað og þangað. Aðventuferð til London alltaf góður kostur því flugið er stutt og laggott. En þér kemur kannski á óvart að vita hvaða flugfélög eru að bjóða best þá leiðina fyrir jólin.

Ristaðar hnetur, jólaljós fyrir allan peninginn og örlítið hlýrra en á köldum klakanum heimavið. London óvitlaus kostur í stutta aðventuferð.
Aðventuferðir velflestra skiptast reyndar nokkuð í tvennt. Annars vegar þeir sem ætla að njóta en um leið versla allt sem hugur girnist og hins vegar þeirra sem hafa engu nennu í troðning í verslunum og kjósa einungis að ráfa um stefnu- og áhyggjulaust, borða vel og drekka og ná kannski andanum aðeins áður en tryllingurinn heima tekur við að nýju.
Nett úttekt á lægstu fargjöldum til og frá London yfir sæmilega langa helgi í London leiðir í ljós að enn er þangað komist fyrir klink næstum svo lengi sem fólk er ekki með tonn af töskum meðferðis. Það leiðir líka í ljós að aldrei er hægt að alhæfa um eitt né neitt eins og meðfylgjandi skjáskot bera með sér.

Flug 29. nóvember til 2. desember. Lággjaldaflugfélagið Wow Air dýrara en British Airways og HELMINGI DÝRARA en ódýrasta lággjaldaflugfélagið. Skjáskot

Nett helgarferð þann 6. desember til 10. desember. Aftur er easyJet lægst allra fram og aftur. Skjáskot

Flug fram og aftur 12. til 16. desember. Hér loks rokkar hið innlenda lággjaldaflugfélag.
Okkur munar flest um tugþúsundir króna og því þjóðráð að bera saman alla möguleika á hinum ýmsu dögum áður en þú neglir aðventuferðina til London þetta árið 🙂







