V ið vöruðum ykkur við. Við vöruðum ykkur við árið 2012, 2013, 2014, 2015, 2016, 2017 og 2018. Samt heldur landinn áfram að eiga viðskipti við ítrekaðan svindlara og eiganda Úrval Útsýn.

Kemur ekki upp úr kafi það sem við höfum sagt um Pálma Haraldsson síðustu sex árin…

Furðulegt nokk. Einstaklingur sem svindlar og svínar um áraraðir og biðst vægðar og lofar bót og betrun þegar upp komst á ekki skilið að á hann sé pissað ef það kviknar í honum. Samt heldur Pálmi Haraldsson áfram að skjóta undan skatti í massavís og glottir við tönn.

Athyglisvert að skoða tekjur Pálma Haraldssonar, oft kenndum við Fons eða Sölufélag garðyrkjumanna, fyrir árið 2016 á vef tekjur.is.

Eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti virðist kauði sannarlega hafa bætt sitt ráð. Allt gefið upp til skatts sem launatekjur og það tiltölulega lágar launatekjur miðað við fyrri tíma milljarðamæring. Alls engar fjármagnstekjur samkvæmt gögnum ríkisskattstjóra.

En það er einhver skítalykt af þessu og það kemur heim og saman við frétt Stundarinnar frá ágústmánuði á síðasta ári:

Ferðaskrifstofa Pálma Haraldssonar, sem yfirleitt var kenndur við eignarhaldsfélagið Fons, skilar stöðugum hagnaði ár eftir ár. Í fyrra skilaði fyrirtæki hans, Ferðaskrifstofa Íslands, tæplega 40 milljóna króna hagnaði og var greiddur 27 milljóna arður til fyrirtækis Pálma í lágskattaríkinu Lúxemborg, Academy Sarl. Árið þar á undan, 2015, var greiddur 170 milljóna króna arður úr félaginu, eða 35 prósent af hlutafé félagsins, eftir að félagið hafði skilað rúmlega 130 milljóna króna hagnaði. Árið 2014 nam arðgreiðslan ríflega 172 milljónum.

Það var nefninlega það! Pálmi Haraldsson malar gull gegnum ferðaskrifstofur sínar Úrval Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir og skýtur öllum hagnaði undan gegnum skattaskjólsríkið Lúxemborg!!!

Sama árið og Haraldsson gefur upp 657 þúsund króna mánaðarlaun hér heima fyllir hann sundlaug í Lúxemborg með 370 milljónum króna á síðustu þremur árum eða svo. Eðli máls samkvæmt greiðir hann engan skatt af því fé í Lúxemborg sem er ástæða þess að Lúxemborg er skattaskjól 😉

Jamms, það eins og við sögðum fyrir um: einu sinni svindlari, alltaf svindlari.

Skammist ykkar fyrir að eiga viðskipti við manninn.