Amm. Það margborgar sig að þræða króka og kima internetsins. Eða hverjum hefði dottið í hug að við klakabúar á Íslandi gætum komist alla leið til Víetnam og heim aftur fyrir svo lítið sem 60 þúsund krónur!!!

Og þú hélst að Ho Chi Minh væri eitthvað krummaskuð 🙂

Við erum ekki einu sinni að djóka. Það er raunverulega hægt að fljúga frá Íslandi til Kaupmannahafnar, þaðan til Istanbúl og áfram til Ho Chi Minh í Víetnam og sömu leið til baka fyrir rétt rúmar 60 þúsund krónur alls 🙂

Það fer langleiðina í að vera lægsta fargjald sem nokkurn tíma hefur sést þessa annars löngu leið og ekki skemmir neitt að möguleiki er á að stoppa og eyða tíma í Istanbúl bæði á útleið og heim aftur.

Það er Turkish Airlines sem þetta er að bjóða þessa stundina en auðvitað ekki beint frá Keflavík því þangað flýgur tyrkneska flugfélagið ekki enn.

Tyrkirnir eru hins vegar að bjóða fargjöld frá Danmörku gegnum Istanbúl til Víetnam í maí og júní á næsta ári og sömu leið til baka fyrir svo lítið sem 45 þúsund krónur. Og við komumst auðveldlega til Danmerkur á þeim tíma fyrir þetta 15-20 þúsund krónur fram og aftur á lægstu fargjöldum héðan;)

Og hversu ljúft er svo lífið í Víetnam þessi dægrin…

The beauty of Vietnam from Lytchee on Vimeo.