Eigum við að skjóta á hvað við flest fáum í jólagjöf? Eina víða og ljóta peysu, þrettán bækur og þar af sex sömu tegundar, þrjá konfektkassa frá fólki sem nennti ekki að hugsa og kannski eina til tvær gjafir sem okkur langaði virkilega í.

Demantshálsmen er gott per se. En það er til nóg af þeim meðan Suðurskautið er að hverfa smám saman að eilífu. Hvort ætli sé betri gjöf?
Hefur einhver tekið eftir að kröfurnar um flottar jólagjafir verða háværari og háværari með hverju árinu jafnvel þó enginn segi stakt orð.
Ef þú gefur konunni demantseyrnalokka sem kosta 180 þúsund eitt árið eða eiginmanninum veiðiferð til Rússlands fyrir 250 þúsund kallinn þá verðurðu að toppa þá gjöf ári síðar. Annars ertu prump eða trump.
Mörg okkar hafa áhyggjur af neysluhyggju almennings. Neysluhyggju sem ekki aðeins gerir okkur EKKI glöð heldur og kostar tíma, peninga og á endanum meiri mengun á litla bláa hnettinum okkar.
Sú mengun í ofanálag við hlýnun jarðar er að gjörbreyta landakortum. Eyjur fara undir sjó, borgir gætu þurrkast út í heilu lagi og íshellurnar á Norður- og Suðurskautunum bráðna hraðar en þú getur skipt um skoðun.
Það verður líklega enginn ís á Norðurskautinu þegar barnabarnið þitt nær þrítugsaldri og ef marka má spár, lítið eftir af Suðurskautinu þegar barnabarnið nær fimmtugsaldri. Hvers vegna þá ekki grípa tækifærið og skoða Suðurskautið meðan það er?

Mörgæsahópur á ísjaka við Suðurskautið. Slík sjón fágæt að 30 árum liðnum.
Það kostar sannarlega. Hartnær eina milljón króna á haus ef þú gerir og græjar allt sjálfur og færð tvær klukkustundir á íshellunni. Eða 1,3 milljón króna ef þú tekur ljúfa pakkann á þetta 🙂
Norska fyrirtækið Hurtigruten, sem þekkt er fyrir afar ljúfar siglingar um stórkostlega norska firði, lætur það ekki nægja. Norðmennirnir bjóða líka túra um Suðurskautið frá Argentínu og Chile. Þeir meira að segja bjóða frítt flug frá Bandaríkjunum og Kanada ef bókað er núna.
Um þetta má fræðast nánar hér. En helvískir Norðmennirnir eru að bjóða Ameríkönum frítt flug niðureftir hnettinum en sleppa því alfarið í Evrópu. En þessa stundina má fá FIMMTÁN DAGA SIGLINGU um Suðurskautið í lok næsta árs með fimm stjörnu dalli plús ýmislegt innifalið fyrir 1,3 milljónir króna. Plús auðvitað flugið til Kanada eða Bandaríkjanna og heim aftur 🙂
Jamm, auðvitað fokdýrt fyrir Jón og Gunnu meðalfólk. En hugsaðu aðeins lengra. Er það ekki þess virði, ef þú átt peninga til að eyða, að gefa eitthvað ógleymanlegt í stað þess að kaupa næsta flotta 200 þúsund króna hönnunarlampa eftir skýtinn og ókunnan Finna?
Lampinn verður jú steingleymdur eftir sjö mínútur sléttar. Sigling um borgarísjaka á stærð við Ísland gleymist aldrei og þaðan af síður sigling um heimsálfu sem innan tíðar mun ekki finnast á kortum.







