Töluvert svartur föstudagur hjá Icelandair. Flug frá Portland hingað heim fellt niður með tilheyrandi veseni og sömuleiðis túr til Parísar héðan. Feitar tafir á flugi félagsins frá New York og Amsterdam. Plús að enn er hlutabréfagengið á grafarbakkanum.

Ýmislegt úrskeiðis hjá Icelandair þennan daginn. Mynd Boeing
Eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskotum var töluvert vesen hjá flugfélaginu þennan daginn.
Var varla á það bætandi eftir að fyrrum stjóri hætti nýlega eftir ítrekuð og grafalvarleg mistök í starfi og löngu eftir að stjórnin átti að sparka karlinum. Hlutabréfaverð í flugfélaginu er áfram við botninn þrátt fyrir að ónýtur stjóri sé frá og litlu breytir að milljarðamæringarnir í stjórn flugfélagsins ætli að fá utanaðkomandi aðila til að finna næsta stjóra.
![]()


Tvær rellur langt á eftir áætlun og farþegar flugfélagsins frá New York geta farið að sækja um bætur enda tafir yfir þrjár klukkustundir sem er ávísun á dágóða peningaupphæð. Farþegar til Amsterdam óheppnir því gefið var í á leiðinni og rellan lenti í Amsterdam 40 mínútum áður en bætur fóru að tikka.
Aðrar tvær rellur bilaðar eða kyrrsettar eða whatnot því ekki kemur fram á vef Icelandair ástæða þess að tvær flugferðir eru felldar niður sísona.
Hið jákvæðasta mál því þetta þýðir 600 fúla farþega sem líklega nota ekki þjónustu Icelandair síðar meir. Plús auðvitað einhverjar hundruðir þúsunda í bætur til handa farþegunum svo arðgreiðslur félagsins verða minni en ella á næstu vertíð.
En ljóst að næsta stjóra bíða feit og mikil verkefni…







