Ef matvöruverslanir reyndu sömu trixin og flugfélög fengju þær sektir mjög fljótlega. En góðu heilli fyrir þau er Neytendastofa önnum kafin við að tékka verðmerkingar í gluggum verslana á Bíldudal.

Lágmarksverð fyrir okkur klakabúa til Indlands er 19.900 með Wow Air eða 20.800 með bókunargjaldi. Sem þýðir að Kaninn flýgur nánast frítt hingað til lands til að komast áfram til Indlands. Skjáskot

Finna má töluvert margar fréttir síðustu sólarhringa frá bandarískum miðlum um hreint stórkostleg fargjöld hins íslenska Wow Air til Indlands í vetur. Mogensen og hans fólk að bjóða fargjöld sem aldrei hafa sést áður til Asíu eða 21.200 krónur aðra leiðina til Nýju-Delí frá borgum á borð við Detroit, Los Angeles og Montreal.

Sannarlega stórkostlegt tilboð og fjölmiðlar vestra gera þessu góð skil með tilheyrandi auglýsingagildi fyrir íslenska flugfélagið. Nema kannski að margir fjölmiðlar vestra virðast mannaðir bólugröfnum unglingum eins og hið íslenska Fréttablað. Fáir miðlar taka fram að umrætt fargjald, sem er í boði á einni eða tveimur dagsetningum fram til mars á næsta ári, er aðeins í boði ef keypt er flug FRAM OG AFTUR.

Og þar liggja hundar grafnir.

Hugsandi Íslendingar kannast ábyggilega við trixið. Níu þúsund og níu hundruð aðra leiðina til London eða 12.900 aðra leiðina til Kanarí hljómar aldeilis príma. En þegar til kemur vantar ekki aðeins bókunargjald sem bætist sjálfkrafa ofan á pakkann heldur og að flugið til baka er yfirleitt töluvert dýrara en leiðin út.

Og það sannarlega raunin hjá Wow Air frá Bandaríkjunum til Nýju-Delí. Við skönnuðum flug fram og aftur fram til mars á næsta ári og þó 21.200 krónur aðra leið hljómi stórkostlega þá er enginn að fljúga fram og aftur undir þetta 60-70 þúsund krónum og það án alls farangurs á ódýrasta farrými. Flugið til baka kostar oftar en ekki tvöfalt og á köflum þrefalt það sem það kostar að fljúga ódýrast út til Indlands.

Og það vita þeir sem skannað hafa flugferðir frá Evrópu til Indlands síðustu misseri og sólarhringa að 70 þúsund króna fargjöld þangað eru í dýrari kantinum og það meira að segja hjá hefðbundnum flugfélögum sem bjóða bæði þjónustu og farangur með í pakkanum. Létt leit leiddi í ljós að frá Frankfurt er hægt að komast til Nýju-Delí með farangur og alles niður í 52 þúsund krónur báðar leiðir. Frá Helsinki er komist þessa leiðina fyrir 56 þúsund krónur fram og aftur á mörgum dagsetningum í vetur. Frá Róm kostar pakkinn 60 þúsund kall og ef fólk nennir að millilenda í Kíev í Úkraínu fæst pakkinn niður í 48 þúsund kall.

Með öðrum orðum, þá eru þessi stórkostlegu fargjöld Wow Air frá Bandaríkjunum til Indlands ekki sérstaklega frábær þegar allt er til talið…