Það var og. Milljarðamæringurinn Skúli Mogensen neitar að tala við Fararheill og blokkerar miðilinn alfarið á samfélagsmiðlum flugfélagsins vegna gagnrýni útaf lélegri þjónustu Wow Air. En þegar stór bandarískur fjölmiðill, CNBC, vill vita meira er Mogensen herra stimamjúkur og skilningsríkur út í eitt.

Wow Air með lélega þjónustu? Það þurfti risamiðil frá Bandaríkjunum til að Mogensen viðurkenndi það. Skjáskot
Fréttamenn hins bandaríska CNBC birtu fyrir skömmu viðtal við Mogensen þar sem hann var sérstaklega spurður út í slælega þjónustu flugfélagsins Wow Air. Viðtalið má finna hér en í því viðurkennir kappinn að þjónustan sé döpur og þar þurfi flugfélagið aldeilis að taka á honum stóra sínum.
Jahá! Einmitt það.
Þjónustustig Wow Air hefur verið við frostmark síðustu þrjú árin hið minnsta og við talað um ítrekað. Ekki hefur Mogensen sýnt okkur lit og skilning. Þvert á móti. En stór bandarískur miðill er allt annar hlutur auðvitað. Þá er tími til að sýna linkind og eftirsjá og lofa bót og betrun.
Merkilegt nokk er CNBC samt að fjalla um sama fólkið og Fararheill: viðskiptavini Wow Air. Ekki hefur Mogensen hirt hætishót um ítrekaða gagnrýni okkar á slælega þjónustu. Þjónustan hefur versnað ár frá ári.
Sem bendir til þess að kappinn sé aðeins að spila með þegar stór bandarískur miðill vill vita meira um hörmungarþjónustu Wow Air. Það stendur sennilega ekkert til að bæta hana mikið ef þú spyrð okkur.







