Ófáir á samfélagsmiðlum hafa gegnum tíðina hlegið að svokallaðri samkeppni milli verslana Krónunnar annars vegar og Bónuss hins vegar. „Samkeppni“ sem helgast af því að annar aðilinn er alltaf krónu dýrari en hinn og þar við situr. Sama virðist uppi á teningnum hjá Wow Air og Icelandair til San Francisco.

Þrátt fyrir mikið nýrri og sparneytnari vélar er ekkert mikið lægra verð í boði til San Francisco með Wow Air í sumar. Samsett mynd
Sem kunnugt er ætlar Icelandair að skottast til San Francisco á vesturströnd Bandaríkjanna á nýjan leik í sumar eftir tólf ára pásu en þar er fyrir á fleti Wow Air sem flogið hefur þá leiðina um nokkurt skeið.
Auðvitað jákvæðasta mál að fá samkeppni á sem flestum flugleiðum til og frá landinu enda ekkert annað sem kemur í veg fyrir einokun og okur. En það er óheyrilega skondið að gera verðsamanburð á flugi fram og aftur með flugfélögunum tveimur.
Við leituðum uppi lægsta fargjaldið hjá báðum flugfélögum til San Francisco og heim aftur með innritaða tösku í júní, júlí og ágúst og niðurstaðan er Krónan – Bónus í tveimur tilvikum af þremur.*
Í júnímánuði kemst einstaklingur til og frá með Wow Air fyrir 66.491 krónu. Lægsta verðið þann mánuð hjá Icelandair reynist vera 66.725 krónur. Það verðmunur upp á heil 0,3 prósentustig. Alvöru samkeppni þar (eða ekki.)
Langi mann til San Fran í júlí á lægsta mögulega verði með tösku með Wow Air kostar túrinn 79.991 krónu. Leiti sami maður uppi lægsta flugpakkann hjá Icelandair finnur viðkomandi fargjald á 80.125 krónur. Hreint ógnvænlegur verðmunur upp á 0,1 prósentustig.
Það er loks í ágúst sem aðeins ber á milli hjá flugfélögunum tveimur. Þá reynist flug báðar leiðir lægst á 71.991 krónu hjá Wow Air en 80.125 krónur hjá Icelandair. Það 11% verðmunur.
* Samanburður gerður samtímis hjá báðum aðilum kl. 18 þann 14. janúar 2018. Lægsta fargjald fram og aftur með innritaða tösku. Hafa ber í huga að handfarangur einnig innifalinn hjá Icelandair en aðeins veski hjá Wow Air. Afþreyingarkerfi og kaffi og gos frítt hjá Icelandair en ekkert ókeypis hjá Wow Air.







