Skúli Mogensen, eigandi Wow Air, segir hugsanlegt að setja fyrirtækið að hluta á markað strax árið 2019. Það ár gerir eigandinn ráð fyrir að tekjur flugfélagsins nái einum milljarði dollara.

Skúli Mogensen gæti hugsað sér að selja hluta flugfélagsins Wow Air á næstunni. Mynd Alec Wilson
Í samtali við Reuters fréttastofuna segir Skúli að hraður vöxtur Wow Air undanfarið kalli á breytingar á skipulagi og jafnvel eignarhaldi á komandi árum en hann hafnar því alfarið að hann ætli að selja flugfélagið. Í besta falli verður hlutur í flugfélaginu seldur hæstbjóðanda eða hluti þess settur á markað.
Þó ómögulegt sé að segja fyrir um gengi hlutabréfa almennt má telja ljóst að Skúli sjálfur mun hagnast um tug- og jafnvel hundruð milljarða króna að minnsta kosti við að selja nokkur bréf í hlutafélaginu ef áhugi er nægur hjá fjárfestum. Hætt er við að það verði raunin hjá flugfélagi sem eyðir ENGU í þjónustu af neinum toga.







