Hafi hugur einhvern tíma leitað til München í Þýskalandi en ekki færi á hingað til gæti tækifærið verið þetta haustið. Icelandair býður beint flug og gistingu í þrjár nætur í október og nóvember á tilboðsverði. En hængur er á.

Aldeilis frábær borg heimsóknar og auðvelt að komast fram og aftur. En Icelandair ekki beint á tánum. Mynd Munchen.de

Tilboð Icelandair hljóðar upp á beint flug til þýsku borgarinnar á tilteknum dagsetningum í haust og vetur frá 57.400 krónum á mann miðað við tvo saman. Samtals því 114.800 krónur á parið í besta falli.

Það er ekkert hræðilegt og þrátt fyrir leit getum við hér hjá Fararheill EKKI fundið flug og gistingu á umræddu hóteli á lægra verði en Icelandair er að bjóða. Þar sem við getum það mjög reglulega og í 80 prósent tilfella verður að segjast að tilboð Icelandair er vel þess virði að láta sig hafa ef borgin er að heilla.

En það er hins vegar pínulítill hængur á og það eðlilega því sjaldan er starfsfólk Icelandair á tánum mikið fyrir íslenska viðskiptavini samkvæmt úttektum Fararheill. Hængurinn sá að það hótel sem Icelandair er að bjóða, fjögurra stjörnu Hotel Regent Munich sem virðist skrambi gott við fyrstu sýn, er fjarri því að fá merkilegar einkunnir á samfélagsmiðlum.

Hótelið atarna fær þrjár stjörnur af fimm hjá Tripadvisor, þrjá komma þrjá af fimm mögulegum hjá Booking.com og 7,2 af 10 mögulegum hjá Kayak.com. Hjá margverðlaunuðum bókunarvef Fararheill slefar hótelið aðeins í 6.6 í meðaleinkunn af tíu mögulegum. Með öðrum orðum; hótelið sem um ræðir þykir ekki par merkilegt fyrir fjögurra stjörnu hótel. Það svona rétt sleppur í þeim flokki.

Ekki svo að skilja að lélegar einkunnir skipti sköpum. Við erum jú ekki að þvælast til erlendra stórborga til að klára áfengið úr míníbarnum á hótelherberginu. En miðað við að á hótelvef Fararheill, sjá neðar, má finna að minnsta kosti sex fjögurra stjörnu hótel í borginni með BETRI einkunnir og LÆGRI kostnað á sama tímabili má ljóst vera að Icelandair er ekki beint að gera sitt besta.