Það er aðeins tímaspursmál áður en þjónustustig Wow Air Skúla Mogensen verður á pari við þjónustustig Iceland Express Pálma „skítmennis og svindlara“ Haraldssonar. Bandarískir fjölmiðlar, sem flestu eru vanir, eru farnir að fjalla reglulega um hörmungarnar.
Það þykir til dæmis töluvert fréttaefni að flugfélag geti týnt sömu tösku TVISVAR SINNUM eins og virðist hafa gerst hjá Wow Air nýlega. Ekki aðeins það heldur virti flugfélagið umræddan viðskiptavin að vettugi í þrjá mánuði og gaf honum ekki tíma dagsins fyrr en bandaríska fréttastofan NBC hafði samband. Þá allt í einu var hægt að svara og á endanum greiða bætur fyrir töskuna sem týndist tvisvar.
Það mætti halda að Wow Air væri frá Mósambík miðað við framkomuna við þennan viðskiptavin og tugþúsundir annarra sem aldrei fá svör við vandamálum.
„“







