Flugfélagið Wow Air bætti í vikunni enn einum áfangstaðnum við leiðakerfi sitt og að þessu sinni Tel Aviv í Ísrael. Eðalfínt að fá aukið úrval en öllu lakara að við Bandaríkjamenn fá fargjaldið á öllu vægara verði en við hér á klakanum.

Tel Aviv á ratsjám Wow Air en ekki njóta allir sömu kjara. Mynd Alec Wilson

Allra lægsta verð aðra leiðina til Tel Aviv frá Keflavík með Wow Air kostar 15.998 krónur og þar alls ekkert innifalið. Ekkert hræðilegt verð alla þessa leið en flugferðin atarna tekur rúmar sjö stundir.

Það er hins vegar æði dapurt þegar haft er í huga að einstaklingur sem flýgur með Wow Air frá Los Angeles í Kaliforníu til Tel Aviv með millilendingu í Keflavík borgar lægst 20.162 krónur fyrir miðað við gengi dagsins. Það flug tekur vart minna en 16 klukkustundir alls.

Þetta vitaskuld merkir að flugið frá Los Angeles kostar aðeins tæpar fimm þúsund krónur til Íslands. Sem er stórmerkilegt því önnur leiðin frá Keflavík til Los Angeles fæst ekki undir 40 þúsund krónur á vef Wow Air.

Fólk þarf ekki að vera langskólagengið til að sjá óréttlætið í að Kaninn borgi rétt rúmar 20 þúsund krónur fyrir 16 stunda flug meðan Íslendingurinn Skúli Mogensen heimtar sextán þúsund krónur fyrir sjö stunda flug hjá samlöndum sínum. Ráð að breyta mottóinu úr flugfélag fólksins í flugfélag Kanans?