Undarlegur er heimur milljónamæringa. Forstjóri Icelandair Group, sem er „on record“ að heimta að landsmenn allir borgi hærri skatta til að fjármagna nauðsynlegar fjárfestingar svo Icelandair geti grætt meira, vill svo alls ekki að fyrirtæki sitt greiði krónu meira í skatt en verið hefur og er fyrirtækið þó að greiða helmingi minna en öll önnur fyrirtæki í landinu!!!

Dúndrandi uppsveifla í ferðaþjónustu. En að almúginn njóti góðs af því er synd á synd ofan að mati forstjóra Icelandair. Skjáskot RÚV
Um langt skeið hefur ritstjórn Fararheill hvatt stjórn Icelandair Group til að sparka Björgólfi Jóhannssyni út í hafsauga án árangurs þó enn sem komið er. Ekki aðeins var þessi forstjóri á vaktinni meðan hlutabréf Icelandair Group féllu hraðar en nærbuxur á lélegum strippara og ollu bæði hluthöfum og lífeyrissjóðum landsmanna milljarða tjóni á augabragði heldur og vill Björgólfur ekki sjá að almenningur í landinu, þar með talið hans eigið starfsfólk, njóti góðs af þeirri gríðarlegu uppsveiflu sem orðið hefur í ferðaþjónustu.
Neibbs!
Sami Björgólfur og plöggar að almenningur eigi að greiða meiri skatta en þegar er raunin, en merkilegt nokk finnst sú ræða hans ekki lengur á vef Samtaka atvinnulífsins, og að almenningur eigi að selja frá sér ALLAR eigur ríkisins sem skila arði af einhverjum toga, segir Björgólfur alveg fráleitt að stærsta fyrirtæki á Íslandi greiði meiri skatta en raunin er. Hann vill ekki einu sinni að fyrirtæki sitt greiði sama virðisaukaskatt og ÖLL ÖNNUR FYRIRTÆKI Í LANDINU!
Hvers vegna RÚV tekur mark á slíkum skíthaus er ritstjórn Fararheill óskiljanlegt. Björgólfur er svona týpa sem væri vondi kallinn í næsti Legó-bíómynd. Vondur kall sem góða fólkið tekur niður í lok myndar og færir í fangelsi fyrir að vera almennur rottuhaus og græðgissleði.
Biðlum enn og aftur til lesenda okkar að eiga engin viðskipti við fyrirtæki sem fram á við brosir sínu breiðasta og fær landsliðið í fótbolta til að gera okkur meir og ljúf í auglýsingum en er bak við tjöldin að berjast fyrir að við greiðum hærri skatta á meðan stærsta fyrirtæki landsins greiðir þrefalt minni skatt af sínum tekjum en aumur atvinnuleysingi.
Fyrir utan auðvitað að vélar Icelandair eru það gamlar að finna má myndir af vélum fyrirtækisins í Árbæjarsafni…







