Forstjóri sem vill ekki að almenningur eigi nokkurn skapaðan hlut. Fyrirtæki sem telur styrkleikamerki að reka einn elsta flugflota á Vesturlöndum. Þúsundir starfsmanna sem eru ósáttir við lág laun. Þriðja heims þjónustustig gagnvart viðskiptavinum. En nýkjörin stjórn félagsins telur stærsta vandamálið hvað hluthafar fá nú lítið fyrir sinn snúð.

Nýrri vélar, hærri laun, betri þjónusta? Neibb. Stjórn Icelandair vill bara að hluthafar fái fleiri seðla.

Þau eru mýmörg vandamálin hjá Icelandair Group sem rekur meðal annars Icelandair og Flugfélag Íslands svo fátt sé nefnt.

Flugflotinn „aðeins“ 21,2 ára gamall að meðaltali. Millet-úlpan var enn í tísku þegar vélar Icelandair voru framleiddar. Langlægsta einkunn starfsfólks vegna launakjara hjá stórfyrirtæki samkvæmt fyrirtækjakönnun VR. Mánuði getur tekið að afgreiða einfaldar kvartanir viðskiptavina. Forstjórinn vill að vinir og vandamenn njóti alls arðs af Landsvirkjun, Landsneti, Leifsstöð og ÁTVR en ekki sauðsvartir plebbarnir sem landið byggja. Hann vill líka að almúginn í landinu greiði hærri skatta til að borga fyrir betri vegi, breiðari brýr og allt annað sem nýtist erlendum viðskiptavinum Icelandair. Fyrir utan auðvitað að hlutabréf Icelandair eru aðeins fjórtán krónum frá því að vera tómur skeinipappír þegar þetta er skrifað.

Skynsamt fólk gæti ályktað sem svo að ráð væri að eyða einhverjum af þeim milljörðum króna sem Icelandair á og safnar ryki inni á bankareikningum til þess að bæta starfsemina. Greiða fólkinu hærri laun kannski? Lækka flugfargjöld kannski? Safna fyrir eins og einni vél sem South African Airways er ekki að henda á haugana? Nú eða blæða í þrjá, fjóra starfsmenn í viðbót í þjónustuverið?

Þvílík fjarstæða!

Slíkt væri tóm sóun á fjármunum að mati nýrrar stjórnar félagsins hvers fyrsta verk var að heimila fyrirtækinu að eyða allt að tveimur milljörðum króna til kaupa á eigin hlutabréfum. Þegar þetta er skrifað hefur Icelandair eytt rúmum MILLJARÐI króna í hlutabréfakaup í Icelandair á aðeins fjórum vikum.

Þegar fjársterkt fyrirtæki ákveður að eyða stórum upphæðum til kaupa á eigin bréfum er ljóst að þeir fjármunir fara ekki til að styðja starfsemi félagsins eða styrkja reksturinn. Hlutabréfakaup fyrirtækis í sjálfu sér hefur þann eina tilgang að auka hagnað hluthafa félagsins án þess að bæta reksturinn eina agnarögn.

Sem segir okkur hér að sneiða alfarið hjá þessu skítabatteríi sem Icelandair er í dag. Sama batterí og eyðir tugmilljónum króna í sneddí hugljúfar auglýsingar en er að moka undir sjálft sig á kostnað viðskiptavina á bak við tjöldin eins og Jóakim Aðalönd á sterum.

Leyfum þessu fratfyrirtæki að sigla sinn sjó og notfærum okkur einhvert hinna 30 flugfélaga sem nú fljúga til lands og frá 😉