Það var og. Loks þegar Íslendingar fá sitt eigið „lággjaldaflugfélag“ þá reynist það heimta mun fleiri seðla en erlend lággjaldaflugfélög fyrir sama pakka 🙁

Enn eitt árið…. Samsett mynd
Ritstjórn Fararheill hefur um sjö ára skeið gert verðsamanburð á flugi með hinum og þessum hingað og þangað og gert lesendum viðvart. Dyggir lesendur vita sem er að sjálfskipaða lággjaldaflugfélagið Wow Air reynist á köflum dýrara á fóðrum en Icelandair og er oftar en ekki dýrari kostur en erlend lággjaldaflugfélög sem hingað fljúga.
Það á því ekki að koma sálu á óvart að enn eitt árið reynast fargjöld Wow Air töluvert hærri en fargjöld hins spænska Vueling til Barcelóna í Katalóníu. Fargjöld beggja aðila hækka jafnt og þétt eftir bókunarstöðu hverju sinni og hækka vitaskuld meira eftir því sem nær dregur en verðmunurinn á lægsta fargjaldi í boði þegar þetta er skrifað í júnímánuði er æði sláandi eða um 120 prósent hvorki meira né minna!!!
Staðan er öllu betri þegar kemur að júlí og ágúst en þá er líka hollt og gott að hafa í huga að Vueling leyfir farþegum að taka með sér eðlilega stærð af handfarangri um borð meðan Wow Air nískast eins og rjúpa við staur og er, okkur vitandi, eina flugfélag heims sem leyfir aðeins örtöskum að fylgja með um borð.
Úttekt gerð kl. 23:30 þann 10. mars 2017 hjá báðum aðilum samtímis. Leitað að lægsta fargjaldi aðra leið fyrir einn frá Keflavík til Barcelóna án farangurs. Hafa skal hugfast að fargjöld breytast ört hjá báðum aðilum.







